Styttingar · Viðgerðir · Sérverkefni · Fötin þín, bara betri
Sagan
Saumastofa Saumakallsins er saumastofa fyrir fólk sem vill láta fötin passa betur, endast lengur eða fá nýtt líf.
Ég fór að læra sauma árið 2013 í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Eftir útskrift kveinkaði meiri áhugi & forvitni á faginu þar sem ég komst að því hvað saumaskapur snertir þóðfélagið á svo ótal marga vegi. Leiðin lá í Fatatækni við Tækniskólann í Reykjavík, þaðan sem ég útskrifast árið 2022. Þar dýpkaði ég þekkingu mína á sniðum, efnum, frágangi og allri þeirri faglegu nákvæmni sem góður saumaskapur krefst. Síðan hef ég unnið bæði sjálfstætt starfandi og hjá fyrirtækjum, sinnt fjölbreyttum verkefnum tengdum saumaskap, viðgerðum & minniháttar fatabreytingum.
Þann 30. júní 2024 opnaði ég sjálfstæður saumastofu fyrir almenning í Kolaportinu. Viðtökurnar voru framar vonum og vegna mikillar eftirspurnar lá leið mín í Glæsibæinn þann 1. mars 2025.
Í dag býður Saumakallinn upp á faglega, persónulega og jarðbundna þjónustu, hvort sem það þarf að stytta buxur, laga uppáhaldsflíkina, skipta um rennilás, minniháttar fatabreytingar eða hreinlega sauma eitthvað alveg sérstakt.
Saumakallinn er til þjónustu reiðubúinn.
Hjá Saumakallinum fær fatnaður að lifa lengur með alúð og fagmennsku

Kíktu á verðin
Öll verð eru viðmið
Saumastofan
Find Us
Opnunartími
Mánudag – Föstudag: 10:00 – 17:30
Laugardag & Sunnudag: 13:00-17:00

Hafðu samband
Lögum þetta saman!
Ert þú með fatnað sem þarfnast lagfæringar eða minniháttar breytingu? Hefur þú einhverjar spurningar? Endilega sendu á mig skilaboð hérna og ég svara þér sem fyrst
Einnig býð ég upp á frítt verðmat á allri þjónustu sem er í boði á saumastofunni, þannig endilega kíktu við!
+354 660 3969
saumakallinn@saumakallinn.is















